tag:blogger.com,1999:blog-177749592024-03-07T07:41:03.280+00:00JFKThe wonderful world of JohnJFKhttp://www.blogger.com/profile/07215351389652665108noreply@blogger.comBlogger159125tag:blogger.com,1999:blog-17774959.post-57431407637098544682008-10-06T17:04:00.003+00:002008-10-06T17:11:50.416+00:00Brosum, verum glöðMaðurinn notar færri vöðva þegar hann brosir heldur en þegar hann grettir sig.

Konan líka.

Í ljósi atburða undangengina daga er ljóst að nauðsyn er á bjartsýni og jákvæðni. Þess vegna hef ég ein sett mér að taka "happy thoughts" hugsunarhátt á þetta allt saman. Líta á það bjarta og góða í lífinu. Því mun ég ekki taka þátt í umræðum sem innihalda orðin:

1) Þjóðnýting
2) Gengisfall
3) Króna
4) Kreppa
5) Seðlabankinn

Ég get einnig bent á þann ljósa punkt að ég er nýkominn úr námi og á því ekki bót fyrir boruna mína. Því eru mínir hagsmunir minni en margra þó nægir séu þó. Skemmtilegt hvernig JFK nær að setja fátækt í jákvæðan búning.

Ég ætla að ljúka þessum stutta pistli með góðri speki

"This too shall pass"JFKhttp://www.blogger.com/profile/07215351389652665108noreply@blogger.com3tag:blogger.com,1999:blog-17774959.post-11009144522867588232008-09-26T15:09:00.002+00:002008-09-26T15:17:10.916+00:00Hvað er að frétta af JFKAf hverju ekki að blogga?

Ég ætla ekki að fara út í ástæður bloggþurrðar, þær eru engar. Ég ætla ekki að koma með háfleygar yfirlýsingar um að nú muni ég blogga eins og vindurinn, það væri lygi.
Ég ætla hinsvegar að rita örfá orð um það sem á daga mína hefur drifið undanfarna mánuði.

Fyrst ber að nefna brúðkaup. Mitt brúðkaup meira að segja. Ég giftist ástinni minni, henni Höllu, 12. júlí s.l. og sá dagur var fullkominn. Fjölskylda og vinir gerðu þennan dag þann besta sem undirritaður hefur upplifað.

Hætti í dressmann eftir áratuga viðveru þar. Fór að vinna í Levi's. Hafði gaman af tilbreytingunni en sakna vinnufélaga í Drez.

Fór til Tenerife í brúðkaupsferð. Eins og brúðkaupið sjálft var ferðin fullkomin. Lágum í leti í sólbaði, löbbuðum um, kynntumst nýju fólki (Adda og Elísu) og höfðum áhyggjur af yfirvigt á leiðinni heim.

Flutti til Ísafjarðar (já ísafjarðar). Fékk þar stöðu fulltrúa hjá sýslumannsembættinu þar sem ég sé um ákærumál. Virkilega spennandi vinna en með augljósan ókost. En tíminn líður hratt og ég verð duglegur að koma norður.

Hef þetta ekki lengra í bili, veit ekki hvort eða hvenær einhverju verður hent inn hér til viðbótar

Góða helgi
Fulltrúinn
(hér eftir skrifa ég einungis undir sem "fulltrúinn", þið verðið bara að kyngja því)JFKhttp://www.blogger.com/profile/07215351389652665108noreply@blogger.com4tag:blogger.com,1999:blog-17774959.post-91804911272686238932008-05-15T21:12:00.002+00:002008-05-15T21:16:11.681+00:00Skrítin tilfinningÞað að leiðast getur verið góð skemmtun. Nú þegar maraþonsetu við ritgerðar-gerð er lokið kemst ég að því að ég á frítíma. Þarf ekki að stressa mig á kvöldin yfir því að vera ekki að læra, lesa eða skrifa. Skrítið.

En það er svosem ekkert að gerast, sem er kannski einmitt þema þessarar bloggfærslu. Og kannski er hún dauðadæmd fyrir vikið.

Anywhoo.

Ég ætla að halda áfram að láta mér leiðast. Það er gaman!

/JFKJFKhttp://www.blogger.com/profile/07215351389652665108noreply@blogger.com0tag:blogger.com,1999:blog-17774959.post-40253974577865413662008-05-08T10:08:00.001+00:002008-05-08T10:08:51.401+00:00BÚINN!JFKhttp://www.blogger.com/profile/07215351389652665108noreply@blogger.com5tag:blogger.com,1999:blog-17774959.post-13957786237297860872008-04-15T20:04:00.002+00:002008-04-15T20:08:55.076+00:00Og ég er ........voða voða sybbinn. Sit hér uppá borgum og er sybbinn.

Fór í póker um helgina á meðan Halla mín og Helena mágkona voru að gera girly-stuff. Þá liggur beinast við að gera manly-stuff og hvað er meira manly en póker? Ekkert, nema kannski póker og vindlar frá kúbu. En pókerinn gekk skítsæmó og ég lenti í 3ja sæti, segi það og skrifa.

Ætti samt að vera að þegja og skrifa ML ritgerð, en ég er sybbinn.

Veðrið, boy o boy veðrið, vorið að koma og allt æðislegt að frétta af þeim vígstöðvum. Langar að grilla. Langar í grill. Redda þessu síðast nefnda fyrst og fer svo í það fyrrnefnda.

Og nei mamma, ég er ekki hífaður þegar þetta er skrifað, bara voða voða sybbinn....

/JFKJFKhttp://www.blogger.com/profile/07215351389652665108noreply@blogger.com1tag:blogger.com,1999:blog-17774959.post-5122445683514780732008-04-02T10:09:00.002+00:002008-04-02T10:19:53.441+00:00GasolinaEftir margra vikna umhugsunarfrest hef ég ákveðið að blogga. Það á svo eftir að koma í ljós hvort að sú ákvörðun borgi sig.

Anywhooo...
Er að skrifa ritgerð. Er með skrifstofu á Borgum sem ég deili ásamt Geira. Dandala fínt allt saman og ritgerðin mjatlast áfram á sínum hraða en ekki mínum. En þetta hefst allt saman.

Varð vitni að sjaldgæfum atburði í gær. Mótmæli samlanda minna gegn háu bensínverði og á sjöunda tug trukka að mér skilst sem tóku þátt í því. Ekki ætla ég að halda tölu um málstaðinn sem slíkan (enda Bjarki búinn að gera því góð skil á www.bjarkis.com). Hins vegar langar mig að benda á að í fyrsta skipti í langan tíma eru menn að sýna hug sinn í verki. Við erum evrópu, heims og smáþjóðameistarar í tuði en yfirleitt gerum við ekkert annað en einmitt það. Tuðum.

Nú virðist hinsvegar sem allnokkrir hafi tekið sig til og ákveðið að gera eitthvað annað í málunum. Mér finnst það allt að því aðdáunarvert. En ég hef ekki lent í töfum vegna þessa og þarf ekki að ná í barn á leikskólan, ná flugi eða mikilvægum fundi. Þá væri kannski annað hljóð í skrokknum.

Það skiptir ekki máli hvort að ég hafi samúð með málstaðnum eða ekki. Mér finnst fínt að menn skuli láta verkin tala en ekki bara orðin tóm.

Svo að lokum,
verður þetta síðasta bloggfærslan eða ekki?

/JFKJFKhttp://www.blogger.com/profile/07215351389652665108noreply@blogger.com4tag:blogger.com,1999:blog-17774959.post-91516040055838032602008-02-07T17:28:00.000+00:002008-02-07T17:33:25.234+00:00Eins og flís við rassHvar er ég staddur nema í Vídd? Hvergi, ég er í vídd.

Tengdó farin til Kanarí og þá er JFK kallaður til sögunar til að tryggja að Akureyringar fái sínar flísar. Og það fyrsta sem JFK gerir þegar mætir í Vídd til að tryggja umræddum Akureyringum umræddar flísar? Bloggar.

Yessiríbob. Það er ekki það að neitt sé að frétta. Er í refsirétti núna, var að klára félagarétt og svo er einn áfangi í viðbót og mastersritgerð og hvissbúmm, kallinn orðinn lögfræðingur. Fræðingur í lögum.

Svo langar mig að koma því á framfæri við þann sem málið varðar; Ekki meiri snjó. Þetta er orðið fínt af snjó. Ég nenni ekki að skafa bíllinn minn16x á dag. Hættu þessu.

/JFKJFKhttp://www.blogger.com/profile/07215351389652665108noreply@blogger.com1tag:blogger.com,1999:blog-17774959.post-36024469646560202122008-01-22T14:43:00.000+00:002008-01-22T14:49:07.590+00:00labbaði á hurðJæja, þá er maður búinn að labba á hurð á því herrans ári '08. Reyndar er það ekki alveg nákvæm lýsing þegar ég segi labba því að ég eiginlega opnaði hurðina og labbaði á hana í einum rykk. Ég mætti semsagt í vinnuna með bólgið auga og sagði að ég hefði labbað á hurð. Það voru fáir sem trúðu því.

Handboltinn er mál manna þessa daganna og ég hef komist að því að ég tek þetta alltof mikið inná mig. Ef að vel gengur er ég glaður, illa og ég er ekki samræðuhæfur. Ætla að reyna að róa mig og hafa gaman að þessu.

Nenni ekki að blogga meir, meira seinna
/JFKJFKhttp://www.blogger.com/profile/07215351389652665108noreply@blogger.com0tag:blogger.com,1999:blog-17774959.post-27300276925830308682008-01-12T23:14:00.000+00:002008-01-12T23:23:39.025+00:00Nýtt ár, Avúhú!Af hverju ekki að blogga? Maður spyr sig.

Anywhoo

Jólin komin og farin. Áramótin líka. Þetta var eins gott og það getur verið. Var að vinna mikið í des og nóg að gera. Byrjaði á mastersritgerð og komst eitthvað á stað með hana. Spurning hvort að það verði meistara (masters) verk þar á ferð, kemur í ljós.

Fékk ekki svo mikið af pökkum. Verð að fara að venjast tilhugsuninni að ég sé ekki 9 ára gamall lengur og hef samkvæmt því ekkert tilkall til 63ja pakka eins og var. Fékk engu að síður frábærar gjafir þrátt fyrir að þær hafi ekki verið margar. Uppúr stendur þó gítar sem að Halla mín gaf mér og ég er búinn að vera að glamra á síðan. Held að ég verði að gera konunni minni og nágrönnum greiða með því að læra á kvikindið en mikið afskaplega var gaman að fá þennan pakka. Ekki aðeins var hann lang stærðstur heldur var hann líka skemmtilegastur.

Verð þó að minnast á flakkarann sem að við fengum frá ma og pa. Þvílíkt snilldartæki sem það er. Allir Friends- og simpsonsþættir komnir þarna inn (þökk sé Sigga Rún) og nokkrar bíómyndir í bónus. Þetta þýðir að Jón fer aldrei aftur á video leigu. Sennilega. Kannski. Líklega.

En, skólinn að byrja á mán og ekkert nema gott um það að segja.

Ætla að halda áfram að æfa mig á guitar (viljandi skrifað á ensku þannig að þetta líti flottar út)....

/JFKJFKhttp://www.blogger.com/profile/07215351389652665108noreply@blogger.com4tag:blogger.com,1999:blog-17774959.post-45018509719873177072007-12-24T12:11:00.000+00:002007-12-24T12:13:22.814+00:00GLEÐILEG JÓLÉg óska öllum vinum og vandamönnum gleðilegra jóla og farsæls komandi árs. Þakka fyrir samverustundir á liðnu ári og vona að hátiðarnar fari vel með ykkur.

víííí happy xmasJFKhttp://www.blogger.com/profile/07215351389652665108noreply@blogger.com1tag:blogger.com,1999:blog-17774959.post-41148246008309133582007-12-06T12:48:00.001+00:002007-12-06T12:56:11.561+00:00Poker brings out the worst in peopleÉg nánast get ekki leynt vonbrigðum mínum með þá staðreynd að loksins þegar ég hunskast til að blogga þá commentar enginn. En ég læt ekki deigan síga. Þetta er töff, "deigan síga"

Anywho. Það var póker heima hjá mér um daginn. Við borðið sátu valdir menn í hverju sæti og fór valið eftir ákveðnum skilyrðum. Allir þessir einstaklingar eru þekktir fyrir að vera kurteisir með afbrigðum og geðgóðir. Eða svo ég hélt

Það átti sér stað ákveðin uppákoma sem enginn gat séð fyrir. Menn voru gersamlega óviðbúnir.
Þannig var nefninlega mál með vextina að nokkuð var liðið á leikinn og fjárhæðin í pottinum alltaf að stækka. Svo kom að umræddu spili. Þessu örlagaríka spili. Sem enginn sá fyrir.

Ég legg undir og þóttist vera með nokkuð góða hendi. Tveir af félögunum voru skynsamir og ákváðu að elta ekki. Einn gerði það hinsvegar. Þegar potturinn hafði náð nýjum hæðum og enginn fleiri spil stóðu til boða var kominn tími á að "put up, or shut up" eins og við í pókernum segjum alltaf.
Ég legg mín spil á borðið, andstæðingur minn gerir slíkt hið sama og ég sé að ég hafði þetta. Andstæðingur minn sá það hinsvegar alls ekki og varð, öllum að óvörum, mjög glaður. Byrjar að sópa til sín chipsum þar til ég sá mig knúinn til að leiðrétta misskilninginn. Nú er gott að rifja upp þessi skilyrði sem nefnd voru að ofan, kurteis og dagfarsprúðir. Þegar að hann áttar sig á að hann hafði í raun ekki unnið heldur tapað, lemur hann hnefanum í borðið, lítur á mig og segir hátt og snjallt "krakkhóra". Það liðu fimmtán min. þar til hægt var að halda áfram með spilið því við hlógum svo mikið

good times
/JFKJFKhttp://www.blogger.com/profile/07215351389652665108noreply@blogger.com3tag:blogger.com,1999:blog-17774959.post-65752900651891338782007-11-30T09:12:00.001+00:002007-11-30T09:21:25.796+00:00Ekki dauður úr öllum æðum, bara flestumHeyrðu, hvað er í gangi? Nýtt blogg?

Yes sir í Bob, það held ég nú. Ég er semsé ekki dauður in all vains, hef bara verið latur.

og nú, fréttir!

Ég er búinn í skólanum. Reyndar ekki búinn búinn heldur búinn í tímum. Nú tekur við meistararitgerðarsmíð og ég er aðeins búinn að vera að grúska í því. Prófin fóru vel og enginn upptökuvesenis lærayfirjólintilaðtakaprófíjanúar fyrir JFK. Sem er gott.

Búið að skreyta heima, alveg eins og ég lofaði í færslunni á undan. Sem er í sjálfum sér ekkert afrek því að samkvæmt dagatali þá er vel yfir mánuður frá því að ég lofaði að skreyta. En það vantar samt aðeins meira skraut og við Halla mín ætlum að bæta úr því. Það verður gert einhvern tímann fyrir jól.

En desember er á morgun og sá mánuður fer í það að skrifa ritgerð og vinna í dressmann. Sennilega eru þetta síðustu jólin sem að ég kem til með að vinna þar. Og þegar ég segi sennilega þá meina ég pottþétt, klárlega, algerlega. Ekki það að það sé slæmt að vinna í dressmann en eftir fimm ár þá verður þetta svoltið þreytt. Næsta vor útskrifast ég sem lögfræðingur, ef guð og lukka lofar og þá þarf ég að ákveða hvað ég ætla að verða þegar ég verð stór. Gæti endað á því að ég verð að vinna sem götusópari þegar upp er staðið sökum valkvíða og stekk á tækifærið til að vinna hjá dressmann um jólin. Erfitt að segja.

En með þessu hef ég sýnt og sannað að sögur af andláti mínu hafa verið stórlega ýktar. Ég er á lífi en ég er ekkert sérstakur bloggari.

Wehehellll, hef það ekki lengra í bilinu

/JFKJFKhttp://www.blogger.com/profile/07215351389652665108noreply@blogger.com0tag:blogger.com,1999:blog-17774959.post-33986473940834659332007-10-17T16:42:00.000+00:002007-10-17T16:46:50.458+00:00Zub ZeroKemst alltaf í blogg-gírinn þegar ég er í Vídd. Og áður en þið spyrjið þá er alveg nóg annað að gera í vídd en að sitja fyrir framan tölvuna og blogga. En þar hafiði það.

Íííííískalt úti og svei mér ef jólin fara bara ekki bráðum að koma. Ætla að skreyta fullt í ár því að ég var á kanarí um síðustu jól og missti eiginlega af því. En ég er vinur Ziggapé þannig að ef að mig vantar atvinnumannaráðleggingar þá hringi ég í hann. held að hann byrji að skreyta fyrstur á Akureyri og er sá síðasti til að taka niður.

En skattaréttur heldur ótrauður áfram og mér finnst það ekki gaman. Próf á föstudaginn og skila verkefni á föstudaginn. Mér leiðist ekki þrátt fyrir að finnast þetta leiðinlegt. Það er nebblega ekki það sama

/JFKJFKhttp://www.blogger.com/profile/07215351389652665108noreply@blogger.com0tag:blogger.com,1999:blog-17774959.post-34957348551921944842007-10-12T14:28:00.000+00:002007-10-12T14:33:27.416+00:00Smooth operatorÞá er jón kominn á gamalkunnar slóðir, flísaverslun Vídd no less. Verð að vinna aðeins meðan tengdó er í Kína. Spauglaust, Kína.

En ég er að fara í vísindaferð í SagaCapital á eftir. Var reyndar að þjóna þar þegar þeir opnuðu þannig að ég veit alveg úti hvað ég er að fara. Húsakynnin eru glæsileg og alveg samboðin Jóni ykkar. Ætla að reyna að verða mér úti um eitt stk vinnu eða svo, sjáum hvernig það fer. Það er nebblega þannig að þegar tveir bjórar eru komnir í bumbuna á Jóni þá er hann smooth talker, fjórir bjórar ekki svo mikið og eftir sex stk er jafngott að Jón segi bara ekki neitt.

En sólin skín, hún er fín. Heitt og gott veður, smá vindkæling í gangi en ekkert sem drepur mann.

skattaréttur er byrjaður og ef ég myndi segja ykkur að hann væri áhugaverður, þá væri það helber lygi.

/JFKJFKhttp://www.blogger.com/profile/07215351389652665108noreply@blogger.com2tag:blogger.com,1999:blog-17774959.post-87317371880024300052007-09-27T22:24:00.000+00:002007-09-27T22:37:48.649+00:00Flabbergastedbíddubíddu bíddu. Ég var rétt í þessu í mestu makindum að vinna í verkefninu sem ég á að skila á morgun og sjónvarpið var í gangi. Þeir sem vilja setja út á það, go for it. Ég læri þótt að það sé kveikt á sjónvarpinu. Get ekki lært í þögn, verð stressaður.

Anywho, ég heyri útundan mér að það er verið að kynna myndbönd mánaðarins. Ekki frásögum færandi nema þegar að þulurinn vippar sér í að kynna nýja mynd um stökkbreyttar unglingsskjaldbökur. Eins og það sé ekki nógu fáranlegt.
Alltént var þetta myndband auglýst undir heitinu "teenage mutant ninja skjaldbökunar" Nú spyr ég sjálfan mig " Af hverju, ó af hverju var ákveðið að þýða ekki teenage, ekki mutant, ekki ninja heldur bara turtles!?!"

Sennilega á ég eftir að fara í gröfina hafandi aldrei fengið svar við þessari spurningu, en hún brennur á mér núna.

Well verð að klára skaðabótaréttinn, við skulum segja að aðalmaðurinn í verkefninu sem heitir því guðdómlega nafni Jón (nema hvað), hefði ekki átt að fara framúr umræddan dag

/JFKJFKhttp://www.blogger.com/profile/07215351389652665108noreply@blogger.com4tag:blogger.com,1999:blog-17774959.post-48821098991084228342007-09-20T12:22:00.000+00:002007-09-20T12:26:53.925+00:00The white thunderJafnvægi í heiminum hefur verið náð á ný. Carinan a.k.a. hvíta þruman er búin að fá viðeigandi skoðunarmiða og allt er gott. Þessi "hellingur" sem var að honum var enginn hellingur. Það tók mig og minn bifvélavirkja ca about 32 min að kippa öllum atriðum í lag.

En alltíeinu er kominn fimmtudagur sem bendir til þess að helgin sé skammt undan. Það er lovely.

Nenni ekki að blogga, vildi bara láta vita að hvíta þruman væri í rétta gírnum, margir sem eflaust hafa misst svefn en geta nú sofið rólegir

/JFKJFKhttp://www.blogger.com/profile/07215351389652665108noreply@blogger.com3tag:blogger.com,1999:blog-17774959.post-90454726935569450132007-09-14T14:45:00.000+00:002007-09-14T14:51:32.049+00:00Hvíti bíllinn sem varð grænn, alltíeinubaraÞað er semsé föstudagur í dag, sá 14. þessa mánaðar. Í gær átti mamma mín hinsvegar afmæli og verður það að teljast til hápunktar mánaðarins hingað til. Ég fór líka í 50% próf og hef því formlega lokið samningaréttaráfanga, nema að prófið hafi farið á versta veg. Við skulum í sameiningu krossleggja fingur og tær og vona að svo sé ekki.

En í dag er ég búinn að fara með bílinn í skoðun. Það var ekki skemmtileg ferð. Bíllinn minn, þessi hvíta þruma sem hann er, fékk grænan miða. Þegar ég spurði af hverju þá sagði skoðunarmaðurinn "það er fullt" eins og það væri of langt mál að telja upp og það borgaði sig fyrir mig að leggja Toyotuni fyrir fullt og allt.
Í ljós kom að hann er aðeins farinn að freta, ekki mikið, bara aðeins. Og það vantar stöðu-og númeraljós.
Ég er enginn eldfaugasérfræðingur, en mér finnst þetta ekki fullt. Skipti um tvær perur og læt sjóða aðeins í pústið og lagó, málið er dautt.

Ljósi punkturinn í þessu er þó sá að núna ek ég um á partialy grænum bíl. Þarf ég þá nokkuð að kolefnisjafna?

góða helgi lömbin mín

/JFKJFKhttp://www.blogger.com/profile/07215351389652665108noreply@blogger.com0tag:blogger.com,1999:blog-17774959.post-38013358729468151032007-09-10T20:30:00.000+00:002007-09-10T20:37:45.548+00:00Smurf SmurfHankypanky jíbbícola smurf smurf

Hvað haldiði annað en að jón sé farinn að blogga aftur. Ótrúlega margt spennandi og skemmtilegt búið að gerast síðan ég talaði við ykkur síðast. Fór suður á opnun nýs skemmtistaðar, Rúbin, sem er sennilega sá allra flottasti í Evrópu. Er við hliðina á keiluhöllinni og er alveg hreint magnaður.

Skólinn kominn á fullt og samningarétturinn rétt svo ókláraður, bara eins og eitt lítið skitið 50% próf eftir og við blasir skaðabótaréttur. Skaðabótaréttur er víst alveg ógeðslega erfiður. Gaman að því.

Farinn að æfa aftur, get sagt þetta með nokkurri sannfæringu því að ég fór í síðustu viku og ég er búinn að fara í þessari viku. Þetta þrefaldar því árangur undanfarina mánaða og allt er eins og það á að vera.

En það er ekki hægt að ætlast til þess að fyrsta blogg eftir mánaðarpásu sé eitthvað til að hrópa húrra fyrir.

meira seinna, ég lofa

/JFKJFKhttp://www.blogger.com/profile/07215351389652665108noreply@blogger.com3tag:blogger.com,1999:blog-17774959.post-82239162757272751572007-08-13T09:16:00.000+00:002007-08-13T09:26:02.194+00:00PizzapieÞað held égnú mánudagur og helgin nýliðin. Ekkert nema gott um þessa helgi að segja. Jói og Anna Emm komu norður og það var gaman. Það var farið á smá trall á föstudaginn í tilefni af því en laugardagurinn var rólegri.
Var þó vakinn kl hálf fimm á laugardagsnótt/sunnudagsmorgun. Sá er vakti mig hafði gleymt bæði lyklum og síma og var því læstur úti og gat ekki hringt. Ég sá aumur á honum og leyfði honum að sofa á sófanum.
Svo komu Annaemm og JóiTönn í mat í gær og það var heimabökuð pizza á boðstólnum. Þessi pítsa er margrómuð fyrir að vera sú besta í evrópu og þó víðar væri leitað. Svo var farið á videoleigu og Guilty tekinn með Vin Diesel. Samdóma álit manna og kvenna að sú mynd væri mjög góð.

Anywhoo, enginn frídagur í þessari viku og það styttist í að skólinn byrji. Farinn að hlakka pínkuponsu til en á sennilega eftir að jafna mig á öðrum degi skólaárs og byrja að bölva.

/JFKJFKhttp://www.blogger.com/profile/07215351389652665108noreply@blogger.com2tag:blogger.com,1999:blog-17774959.post-48171688172872360312007-08-09T15:45:00.000+00:002007-08-09T16:30:22.844+00:00Versló núll sjöÞað er liðin heil vika frá síðasta bloggi, og ein verslunarmannahelgi.

Mín versló var hin rólegasta, enda ekki margt um manninn í bænum. Mikið hefur verið rætt og ruglað um þessa ákvörðun að banna tilteknum aldurshóp að tjalda og ég hef að sjálfsögðu skoðun á því.

Mér finnst þetta í hæsta máta undarleg hegðun bæjaryfirvalda. Ég leyfi mér að efast um lögmæti þessarar ákvörðunar og mér finnst tímasetningin stórundarleg, korteri fyrir kosningar eins og maðurinn sagði. Verslunarmenn voru margir hverjir búnir að leggja mikinn kostnað í hátíðina, í samræmi við loforð bæjaryfirvalda. Það ber að hafa það í huga að skipulagning þessarar helgar byrjar af krafti í febrúar-mars og því nægur tími til að gera verslunarmönnum ljóst að það sé möguleiki á því að þeirra stærðsta markhóp verði nánast meinaður aðgangur að hátíðinni.

Svo skil ég ekki hvað allir eru að tala um að helgin hafi farið vel fram. Mér skildist á fréttamiðlum að mikill erill hefði verið hjá lögreglu og að á sunnudagskv hafi allar fangageymslur verið fullar.

En hvort sem menn ætla að halda áfram að rífast um þetta og fara fram á afsögn bæjarstjórnar eða ekki er ljóst að svona vinnubrögð eiga ekki að sjást.JFKhttp://www.blogger.com/profile/07215351389652665108noreply@blogger.com0tag:blogger.com,1999:blog-17774959.post-46965324329901972832007-08-02T15:25:00.000+00:002007-08-02T15:28:58.524+00:00uuuummm Andlitsbók?Tími á smá blogg.

Veðurspá er merkilegt fyrirbrigði. Þegar þeir spá góðu veðri verður maður oftar en ekki fyrir vonbrigðum. Þegar að þeir spá vondu veðri hafa þeir yfirleitt alltaf rétt fyrir sér. Undarlegur andskoti.

Það hefur ekki farið fram hjá mörgum að spáin fyrir helgina er ekki góð. Hvað er þá til ráða? Klæða sig betur er svarið mitt, málið dautt.

annars hef ég verið að vesenast aðeins í facebook sem að Jói minn kom mér inná. Skemmtilegt dæmi og ég hvet fólk til að stofna sitt eigið svæði þarna inni. Hægt að vera í sambandi við fólk sem maður annars þarf ekki að hitta og/eða tala við auglitis til auglitis.

Það skín samt sól núna, vona að það teygi sig yfir á þriðjudaginn í næstu viku.

/JFKJFKhttp://www.blogger.com/profile/07215351389652665108noreply@blogger.com0tag:blogger.com,1999:blog-17774959.post-91491669403978113892007-07-30T14:27:00.000+00:002007-07-30T14:34:06.153+00:00Leggðu slökkvitækið frá þér vinur...Þessi líka ágæta helgi afstaðin. Spilaði póker í góðra vina hópi á laugardaginn og stóð mig með eindæmum illa. Var fyrstur út og fór í playstation í staðinn í hæfilegri fýlu. Það þróaðist svo úti singstar og var háð hörkukeppni. Svona tilþrif hafa sjaldan eða aldrei sést í keilusíðu 2h, nósiríbob.

Sunnudagurinn var svo tekinn með trompi niðri dressmann þar sem að ég komst að því að umferðin um glerártorg er meiri en ég hélt. Ca. 120.000 manns á mánuði.

En versló er framundan í öllu sínu veldi og með sína kosti og galla. Ég verð að vinna á strikinu á föstudag og laugardag. "Að þjóna" gætuð þið þá spurt sjálf ykkur að nokkuð undrandi. "Nei" myndi ég þá svara, svoltið óhress með hvað þetta kom ykkur á óvart.
Ég verð í hlutverki einskonar dyravarðar og felst starf mitt helst í því að hindra að drukknir unglingar tæmi úr slökkvitækjum staðarins (hefur gerst) og að fólk troði sér í lyftuna og valdi því að hún stöðvist (hefur líka gerst).

Þannig að ég sé fram á spennandi tíma

/JFKJFKhttp://www.blogger.com/profile/07215351389652665108noreply@blogger.com0tag:blogger.com,1999:blog-17774959.post-81143142341490498652007-07-27T11:24:00.000+00:002007-07-27T11:29:01.028+00:00Föstudagspistill um akkúrat ekki neittFöstudagurinn no less.

Ekki mikið í gangi hjá Jóni og co þessa daganna. Lúkas á lífi og class-action lögsókn fylgir í kjölfarið. Við sem þjóð erum sérstök að fleiru en einu leyti.

En það er ekkert ákveðið framundan. Ætlaði að reyna að koma mér austur í bústað um helgina en þarf að vinna. Krapp fyrir því.

En það er alltaf verið að selja flísar og svo er jón aðeins farinn að undirbúa síðustu tvær annir í laganámi sínu. Merkilegt til þess að hugsa að næsta vor er möguleiki á því að útskrifast með master í lögfræði. Kallinn að verða fullorðinn get ég sagt ykkur.

En allt gengur sinn vanagang og það er bara ágætt

/JFKJFKhttp://www.blogger.com/profile/07215351389652665108noreply@blogger.com1tag:blogger.com,1999:blog-17774959.post-31637713041906197572007-07-25T08:03:00.000+00:002007-07-25T08:10:46.728+00:00Optimus PrimeWellwell
hversu gott var að borða á freddie the fifth? Pantaði mér nautalund, medium rare og boy-o-boy var hún góð. Það hefði verið hægt að borða hana með skeið. Þetta var bara ofsalega vel heppnaði í alla staði og allir glaðir. Nema SiggiRún daginn eftir. Ekki var hann fúll af því hann var timbraður heldur vegna þess að hann vildi fara aftur, alla daga, vera helst í fæði hjá Fredda. Og ég skil hann vel.

Svo heyrði ég í Bjarkabekkjarbróður sem ég hef ekki gert í allt sumar og stakk uppá því að fara í bíó. Á transformers. kl 23 á sunnudegi. Átti hálft í hvoru von á að það yrðu frekar fáir í bíó og myndin væri svona lala. Varð samt að sjá hana því þetta eru jú transformers sem við erum að tala um.
Kom í ljós að ég var að tala útum rass***** á mér í báðum tilfellum þar sem að það var nánast uppselt og myndin var bara þrælskemmtileg.

Nú bíð ég spenntur eftir að Thundercats (hóóóó!) og He-man komi út og ég verð algóður.

Well, vikan er hálfnuð af því að það er miðvikudagur
/JFKJFKhttp://www.blogger.com/profile/07215351389652665108noreply@blogger.com0tag:blogger.com,1999:blog-17774959.post-226736654451209492007-07-19T11:43:00.000+00:002007-07-19T11:48:26.184+00:00Ahoj-hojFimmtudagur sem þýðir aftur að það er föstudagur á morgun. Sem er gott.

Nóg um að vera, Raggi er í bænum og við fórum í bíó í gær. Quentin Tarrantino myndina með Kurt Russel. Stórgóð. Einn besti endi sem nokkurn tíman hefur sést á hvíta tjaldinu.

Svo borðaði ég bjórkjúkling hjá ma og pa sem var gott og fór í fótbolta með Magnúsi Ofurfrænda Mána sem var alveg frábært.

En það er freddie the fifth á laugardaginn og ég get ekki beðið. Verð samt að bíða. Það sökkar.

Wellster.

Jón kveður

(það er ekkert hækuljóð um sólina núna því að hún er ekki og ég finn ekkert (nenniekkiaðfinnaneitt) í staðinnJFKhttp://www.blogger.com/profile/07215351389652665108noreply@blogger.com2