JFK

The wonderful world of John

Friday, September 26, 2008

Hvað er að frétta af JFK

Af hverju ekki að blogga?

Ég ætla ekki að fara út í ástæður bloggþurrðar, þær eru engar. Ég ætla ekki að koma með háfleygar yfirlýsingar um að nú muni ég blogga eins og vindurinn, það væri lygi.
Ég ætla hinsvegar að rita örfá orð um það sem á daga mína hefur drifið undanfarna mánuði.

Fyrst ber að nefna brúðkaup. Mitt brúðkaup meira að segja. Ég giftist ástinni minni, henni Höllu, 12. júlí s.l. og sá dagur var fullkominn. Fjölskylda og vinir gerðu þennan dag þann besta sem undirritaður hefur upplifað.

Hætti í dressmann eftir áratuga viðveru þar. Fór að vinna í Levi's. Hafði gaman af tilbreytingunni en sakna vinnufélaga í Drez.

Fór til Tenerife í brúðkaupsferð. Eins og brúðkaupið sjálft var ferðin fullkomin. Lágum í leti í sólbaði, löbbuðum um, kynntumst nýju fólki (Adda og Elísu) og höfðum áhyggjur af yfirvigt á leiðinni heim.

Flutti til Ísafjarðar (já ísafjarðar). Fékk þar stöðu fulltrúa hjá sýslumannsembættinu þar sem ég sé um ákærumál. Virkilega spennandi vinna en með augljósan ókost. En tíminn líður hratt og ég verð duglegur að koma norður.


Hef þetta ekki lengra í bili, veit ekki hvort eða hvenær einhverju verður hent inn hér til viðbótar

Góða helgi
Fulltrúinn
(hér eftir skrifa ég einungis undir sem "fulltrúinn", þið verðið bara að kyngja því)

4 Comments:

At 4:04 PM , Anonymous Anonymous said...

Fluttur til Ísafjarðar!! Ég næ því ekki alveg, viltu bara gjöra svo vel að fá þér hús einhvers staðar langt frá fjöllunum. Og já, Tjöruhúsið (minnir að það heitir það, kannski heitir það eitthvað annað, en það er allavega fiskistaður við höfnina) er besta veitingahús á landinu!! :)

Kveðja, Villa

 
At 7:13 PM , Blogger JFK said...

Fiskur hefur aldrei gert neitt fyrir neinn. Og ég bý beint fyrir neðan snjóflóðavarnargarð, sem er reyndar svo stór að ég er hræddur um að það komi flóð úr honum....

 
At 8:48 AM , Anonymous Anonymous said...

Hæ Jón minn :) Langaði bara að smella á þig hamingjuóskum með nýju vinnuna! Samhryggist ykkur Höllu samt innilega að þurfa að vera aðskilin svona lengi, en það styrkir ykkur bara ;)
Gangi þér rosa vel!
Bestu kveðjur frá DK,
Eva

 
At 2:46 PM , Blogger RobbiK said...

Ertu ekki búinn að skrá þig sem fulltrúi í símaskránni :P

 

Post a Comment

Subscribe to Post Comments [Atom]

<< Home