JFK

The wonderful world of John

Saturday, January 12, 2008

Nýtt ár, Avúhú!

Af hverju ekki að blogga? Maður spyr sig.

Anywhoo

Jólin komin og farin. Áramótin líka. Þetta var eins gott og það getur verið. Var að vinna mikið í des og nóg að gera. Byrjaði á mastersritgerð og komst eitthvað á stað með hana. Spurning hvort að það verði meistara (masters) verk þar á ferð, kemur í ljós.

Fékk ekki svo mikið af pökkum. Verð að fara að venjast tilhugsuninni að ég sé ekki 9 ára gamall lengur og hef samkvæmt því ekkert tilkall til 63ja pakka eins og var. Fékk engu að síður frábærar gjafir þrátt fyrir að þær hafi ekki verið margar. Uppúr stendur þó gítar sem að Halla mín gaf mér og ég er búinn að vera að glamra á síðan. Held að ég verði að gera konunni minni og nágrönnum greiða með því að læra á kvikindið en mikið afskaplega var gaman að fá þennan pakka. Ekki aðeins var hann lang stærðstur heldur var hann líka skemmtilegastur.

Verð þó að minnast á flakkarann sem að við fengum frá ma og pa. Þvílíkt snilldartæki sem það er. Allir Friends- og simpsonsþættir komnir þarna inn (þökk sé Sigga Rún) og nokkrar bíómyndir í bónus. Þetta þýðir að Jón fer aldrei aftur á video leigu. Sennilega. Kannski. Líklega.

En, skólinn að byrja á mán og ekkert nema gott um það að segja.

Ætla að halda áfram að æfa mig á guitar (viljandi skrifað á ensku þannig að þetta líti flottar út)....


/JFK

4 Comments:

At 2:57 AM , Blogger Kolla said...

Heyrðu þú gleymdir að minnast á bláu speedo sundskýluna sem ég gaf þér. Þú átt eftir að vera flottur í heita pottinum þegar þú mætir í sund næst, þökk sé skýlunni!

 
At 7:19 PM , Anonymous Anonymous said...

en hvernig gítar er þetta...?

gítar er ekki bara gítar...


Kveðja,
T.H. Reykdal

 
At 10:13 PM , Anonymous Anonymous said...

Mér finnst að þú eigir að blogga á ensku, þú talaðir alltaf ensku með hreim í M.A....

Knús
Hadda

 
At 10:03 PM , Blogger Dagný Rut said...

Þó mín gjöf hafi ekki komið innpökkuð þá er hún ekkert minni gjöf fyrir vikið. Að færa þér hlátur og gleði á lærdómstíma finnst mér gjöf... stór gjöf!

 

Post a Comment

Subscribe to Post Comments [Atom]

<< Home