Playstation vs djamm?
Er heima, hálf slappur eitthvað. Ekki gaman. Finnst akkúrat ekkert gaman að hanga svona.
En helgin var góð. Dressmann fór í ljós og gufu í tungusíðu og svo út að borða á parken. Fámennt en góðmennt og kvöldið hin besta skemmtun. Var samt kominn snemma heim og mætti Höllu minni á leiðinni út. Hún kíkkti niður í bæ og var kominn heim um þrjú. Og haldiði að kallinn hafi verið sofnaður þá? neisiríbob, ég var í playstation alveg þangað til að konan kom heim, er hægt að biðja um það betra?
En ég hef verið að spá í að fara suður í vikunni til þess að vinna aðeins í mastersritgerð. En viti menn, sjaldan verið eins slæmt veður og síðustu tvo daga og jón ekkert að komast lönd né strönd.
Styttist í að eignarréttur byrji og það verður fínt að komast í skólann aftur. Vona að þetta verði manneskjulegur áfangi.
JFK
2 Comments:
Var að spjalla um þetta við Magnús og hann lofar að rífa þetta úr sér fyrir jólin svo hann geti tekið þátt í gelluplottinu með þér ;)
Gangi þér vel í skólanum fram að jólum og reyndu nú að læra eins og brjálæðingur svo við sleppum við að hanga með bækurnar á ströndinni. Nenni ómögulega að standa í því!
Sjáumst :)
Eva
Gott mál, vissi að frændi mundi ekki klikka ;)
og ég skal læra eins og vitleysingur svo að ég verði ekki vitleysingur (kannski of seint ;)
/JFK
Post a Comment
Subscribe to Post Comments [Atom]
<< Home